VALMYND ×

Fréttir

Fundur um heimanámsstefnu

Vorið 2013 var heimanámsstefna, sem unnin var í samráði við foreldra, kennara og nemendur, lögð fram. Nú er stefnan í endurskoðun og því boðum við foreldra á fund til að fá fram þeirra álit. Á fundinum verður einnig rætt um samstarf heimila og skóla. Fundurinn verður í dansstofu skólans fimmtudaginn 11. febrúar kl.17:00 (gengið inn frá Aðalstræti).

Maskadagur

Mánudaginn 8. febrúar er maskadagurinn eða bolludagur öðru nafni. Af því tilefni verða grímuböll á sal skólans sem hér segir:

1. – 3. bekkur kl. 8:20-9:10

4. - 5. bekkur kl. 10:20-11:00

6. og 7. bekkur kl. 13:10-13:40

Nemendur og starfsfólk eru margir hverjir í grímubúningum þennan dag og verður gaman að sjá allar þær furðuverur sem verða á ferli.

Þriðjudaginn 9. febrúar (sprengidag) er svo starfsdagur kennara án nemenda og engin kennsla.

Strætó er hættur að ganga

Vegna veðurs verður hvorki strætó kl 14:00 eða 15:00.  Foreldrar eru beðnir að sækja þá nemendur sem áttu að nota þessar ferðir.  Dægradvöl er opin eins og venjulega.  Vinsamlega látið vita á facebook síðum árganga þegar þið hafið sé þessa færslu. Hringt verður í þá sem ekki melda sig.  Yngri nemendur verða ekki sendir án fylgdar úr skólanum.

Skólahald samkvæmt áætlun

Skólahald verður samkvæmt áætlun í dag. Strætisvagnar keyra líka samkvæmt áætlun en minnt er á símsvarann 8781012 þar sem hægt er að fá upplýsingar um akstur.

Óveður

Vegna slæmrar veðurspár er eftirfarandi upplýsingum komið á framfæri:
Ísafjarðarbær hefur gefið út viðmið um hvenær loka eigi stofnunum vegna  óveðurs. Þar kemur m.a. fram að stofnunum bæjarins sé ekki lokað nema algjöra nauðsyn beri til og getur forstöðumaður lokað stofnun af einni eða fleirum af eftirtöldum ástæðum:

  • Tilmæli frá almannavörnum eða lögreglu
  • Rafmagnsleysi kemur í veg fyrir að hægt sé að halda stofnuninni opinni
  • Ófærð er svo almenn að ekki næst að kalla til lágmarksfjölda starfsmanna til að halda a.m.k. skertri þjónustu

Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með veðurspám og fréttum af veðri.  Skóla verður ekki aflýst nema tilmæli  komi frá Almannavörnum eða lögreglu. Komi ekki tilmæli frá Almannavörnum eða lögreglu verða foreldrar að meta hvort óhætt sé að börn þeirra sæki skóla. Ef foreldrar hafa börn sín heima  þá skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll. Hið sama gildir ef foreld­rar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa.

Strætisvagnar Ísafjarðarbæjar hafa tekið í notkun talhólfsnúmer, 8781012,  þar sem fram kemur hvort og þá hvaða ferðir falla niður. 

Foreldrar eru einnig hvattir til að fylgjast vel með  á heimasíðu almannavarna.

Ólöf Máney söng til sigurs

Sigurvegararnir, Ólöf Máney Ásmundsdóttir og Eydís Eva Björnsdóttir. Skjáskot: María Hrönn Valberg.
Sigurvegararnir, Ólöf Máney Ásmundsdóttir og Eydís Eva Björnsdóttir. Skjáskot: María Hrönn Valberg.

Samvest, undankeppnin fyrir söngkeppni félagsmiðstöðva, var haldin s.l. föstudag. Þar kepptu 8 atriði um keppnisrétt í aðalkeppnninni, sem haldin verður í mars. Ólöf Máney Ásmundsdóttir varð hlutskörpust, en hún söng lagið Mad world, við undirleik Eydísar Evu Björnsdóttur. Þær stöllur koma frá félagsmiðstöðinni á Flateyri. Í öðru sæti urðu Pétur Ernir Svavarsson og Ólöf Einarsdóttir frá félagsmiðstöðinni Djúpinu á Ísafirði, en þau sungu lagið Find you og sá Pétur einnig um undirleik. Karolína Sif Stefánsdóttir frá félagsmiðstöðinni Tópas í Bolungarvík hafnaði svo í þriðja sæti með lagið Ég leitaði blárra blóma og lék Silfá Sigurðardóttir undir á píanó.

Dómarar þetta árið voru þau Beata Joó, Guðmundur Hjaltason og Magnús Traustason. Á meðan þau réðu ráðum sínum, söng Sigríður Elma Björnsdóttir fyrir gesti, en hún mun keppa fyrir hönd Menntaskólans á Ísafirði í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fer á Akureyri dagana 19. - 21. apríl n.k.

Það verður gaman að fylgjast með sigurvegurum Samvest stíga á stokk fyrir hönd okkar Vestfirðinga dagana 4. - 5. mars n.k. í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Við óskum þeim til hamingju með árangurinn og góðs gengis í lokakeppninni.

Snjókomunni fagnað

Það er aldrei svo vont veður að ekki sé hægt að leika sér. Það sönnuðu þessir krakkar í morgun, þegar þeir skelltu sér vel klæddir út í snjóinn og gerðu þessa myndarlegu snjókarla.

Samvest

Samvest, undankeppni fyrir söngkeppni Samfés, verður haldin í sal G.Í. föstudaginn 29.janúar kl. 20.00. Aðgangseyrir á er kr. 1.000, en kr. 1.500 á keppni og ball, sem haldið verður eftir að úrslit verða ljós.

Undankeppnir sem þessar eru haldnar í öllum landshlutum og komast sigurvegarar þeirra í aðalkeppnina, sem haldin er í mars ár hvert.

Frábæru þorrablóti lokið

Prúðbúnir nemendur 10. bekkjar
Prúðbúnir nemendur 10. bekkjar
1 af 3

Í kvöld var haldið hið rómaða þorrablót 10. bekkjar, en slík blót hafa verið haldin hér í skólanum allt frá árinu 1981. Yfir borðhaldi var slegið á létta strengi, en það var Jónas Þór Birgisson sem sá um veislustjórn. Fjöldasöng stýrðu þær Ingunn Ósk Sturludóttir og Hildur Elísabet Pétursdóttir, við undirleik Samúels Einarssonar píanóleikara með meiru. 

Kennarar stigu á stokk og sungu brag nemendum til heiðurs og foreldrar slógu aldeilis í gegn með sínu skemmtiatriði og léku á als oddi í leik, dansi og rappi. Það voru ýmsir leyndir hæfileikar sem komu fram í þeim góða hópi og aldrei að vita nema einhverjir þeirra hasli sér völl á listasviðinu í framtíðinni.

Að borðhaldi loknu var dansað við harmonikuleik Benedikts Sigurðssonar og bassaleik Samúels Einarssonar og var virkilega gaman að sjá þessa flottu unglinga okkar dansa saman eða við systkini, foreldra, ömmur eða afa og var ekkert kynslóðabil að sjá á dansgólfinu.

Þorrablót 10. bekkjar

Þorrablót 10. bekkjar verður  haldið föstudaginn 22. janúar kl. 19:30 á sal skólans. Skemmtiatriði verða í höndum foreldra og starfsmanna skólans, sem hafa unnið að undirbúningi síðustu vikur. Einnig hafa nemendur æft gömlu dansana af kappi, þannig að búast má við frábæru kvöldi.

Gestir koma sjálfir með sinn mat í trogum ásamt áhöldum, en 10. bekkur selur drykki á staðnum. Húsið opnar kl. 19:00.