VALMYND ×

Skólaslit Grunnskólans á Ísafirði

Grunnskólanum á Ísafirði var slitið í 151. skipti föstudaginn 5. júní síðastliðinn og fór athöfnin fram í Ísafjarðarkirkju. Jón Hálfdán Pétursson, deildarstjóri unglingastigs setti athöfnina, en að því loknu tóku kynnar við, þau Emilía Rós Sindradóttir og Garðar Logi Guðmundsson, nemendur í 9.bekk.

Guðbjörg Halla Magnadóttir skólastjóri, flutti ávarp og það gerðu einnig þau Saga Björgvinsdóttir og Hilmir Norðfjörð fyrir hönd útskriftarnema. 

Nemendur buðu upp á tónlistaratriði þar sem Kristín Eik Sveinbjörnsdóttir lék Sonatinu í G-dúr eftir Ludwig van Beethoven.

 

Eftirtaldar viðurkenningar voru veittar í 8. og 9. bekk: 

8. bekkur - Ylfa K. Rósinkara Tómasdóttir hlaut viðurkenningu Rotary klúbbsins á Ísafirði fyrir ástundun og framfarir. 

9. bekkur - Dagbjört Sjöfn Magnúsdóttir hlaut viðurkenningu Rotary klúbbsins á Ísafirði fyrir ástundun og framfarir.

 

Eftirtaldar viðurkenningar voru veittar í 10. bekk:

Rotary klúbburinn á Ísafirði veitti viðurkenningu fyrir ástundun og framfarir í 10. bekk og hana hlaut Sölvey Marie Tómasdóttir.

 

Kvenfélagið Hvöt gaf eftirfarandi viðurkenningar fyrir verk- og listgreinar:

Viðurkenningu fyrir framfarir og vinnubrögð í í smíði og hönnun hlaut Sigríður Jóna Haraldsdóttir.

Viðurkenningu fyrir listræna hæfileika, jákvæðni og áhugasemi í myndmennt hlaut Roza Matijevic Ismailovski.

Viðurkenningu fyrir brennandi áhuga, kraft og dugnað í heimilisfræði hlaut Heimir Logi Samúelsson.


Stöðin Heilsurækt gaf viðurkenningar fyrir góða ástundun og námsárangur í íþróttum. Þær viðurkenningar hlutu Hilmir Norðfjörð og Saga Björgvinsdóttir.

Danska Menntamálaráðuneytið gaf viðurkenningu fyrir góða ástundun, vinnusemi, góð skil og framfarir í dönsku og hlaut Saga Björgvinsdóttir þau verðlaun.

 

Grunnskólinn á Ísafirði veitti eftirfarandi viðurkenningar:

 

Viðurkenningu fyrir metnað, góða ástundun og námsárangur í stærðfræði hlaut Saga Björgvinsdóttir.

Viðurkenningu fyrir góða ástundun og námsárangur í náttúrufræði hlaut Saga Björgvinsdóttir.

Viðurkenningu fyrir góða ástundun og námsárangur í samfélagsfræði hlaut Þórey Þórsdóttir.

Viðurkenningu fyrir góða ástundun og námsárangur í ensku hlaut Guðmundur Arnór Shiransson.

Viðurkenningu fyrir frumkvæði, ábyrgð og áreiðanleika í tækniráði hlutu þeir Jakob Ingi Ingvarsson og Ólafur Pálmi Birgisson.

 

Dokkupúkinn veitti verðlaun í íslensku til minningar um Ölmu Guðrúnu Frímannsdóttur, fyrrverandi kennara G.Í.

Þau verðlaun hlaut Kristín Eik Sveinbjörnsdóttir fyrir metnað, góða ástundun og námsárangur.

 

Starfsfólk Grunnskólans á Ísafirði þakkar árgangi 2010 samfylgdina í gegnum árin og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.

Deila