Ferðir strætisvagna
Ferðir strætisvangna falla niður í dag vegna mikillar hálku og hvassviðris.
Ferðir strætisvangna falla niður í dag vegna mikillar hálku og hvassviðris.
Í gær fengu nemendur vitnisburði haustannar og vonum við að allir hafi náð sínum markmiðum sem þeir settu sér á haustdögum.
Miðvikudaginn 17. febrúar verða foreldraviðtöl hér í skólanum og engin kennsla. Í dag er opnað fyrir skráningar viðtala í mentor og geta foreldrar því valið sér sjálfir þann tíma sem hentar best.
Í desember komu þeir Hlynur Kristjánsson og Hermann Hermannsson frá slökkviliði Ísafjarðbæjar í heimsókn í 3. bekk til að uppfræða nemendur um eldvarnir í tilefni af eldvarnaviku. Við það tækifæri fengu allir nemendur bekkjarins að taka þátt í eldvarnagetraun. Það er hefð að afhenda svo vinninga til vinningshafa getraunarinnar á 1-1-2 daginn og komu þeir félagar í dag með verðlaun fyrir einn nemanda bekkjarins og var það Dagur Atli Guðmundsson sem var svona heppinn. Að launum fékk hann viðurkenningarskjal, reykskynjara og tíuþúsund krónur. Við óskum honum innilega til hamingju með vinninginn.
10. bekkur stendur fyrir hinu árlega Rósaballi í kvöld í sal skólans og stendur gleðin frá kl. 20:00 - 23:30. Aðgangseyrir er kr. 1.000 fyrir einstaklinga en kr. 1.500 fyrir pör, sem mega að sjálfsögðu vera af sama kyni.
Vorið 2013 var heimanámsstefna, sem unnin var í samráði við foreldra, kennara og nemendur, lögð fram. Nú er stefnan í endurskoðun og því boðum við foreldra á fund til að fá fram þeirra álit. Á fundinum verður einnig rætt um samstarf heimila og skóla. Fundurinn verður í dansstofu skólans fimmtudaginn 11. febrúar kl.17:00 (gengið inn frá Aðalstræti).
Mánudaginn 8. febrúar er maskadagurinn eða bolludagur öðru nafni. Af því tilefni verða grímuböll á sal skólans sem hér segir:
1. – 3. bekkur kl. 8:20-9:10
4. - 5. bekkur kl. 10:20-11:00
6. og 7. bekkur kl. 13:10-13:40
Nemendur og starfsfólk eru margir hverjir í grímubúningum þennan dag og verður gaman að sjá allar þær furðuverur sem verða á ferli.
Þriðjudaginn 9. febrúar (sprengidag) er svo starfsdagur kennara án nemenda og engin kennsla.
Vegna veðurs verður hvorki strætó kl 14:00 eða 15:00. Foreldrar eru beðnir að sækja þá nemendur sem áttu að nota þessar ferðir. Dægradvöl er opin eins og venjulega. Vinsamlega látið vita á facebook síðum árganga þegar þið hafið sé þessa færslu. Hringt verður í þá sem ekki melda sig. Yngri nemendur verða ekki sendir án fylgdar úr skólanum.
Skólahald verður samkvæmt áætlun í dag. Strætisvagnar keyra líka samkvæmt áætlun en minnt er á símsvarann 8781012 þar sem hægt er að fá upplýsingar um akstur.
Vegna slæmrar veðurspár er eftirfarandi upplýsingum komið á framfæri:
Ísafjarðarbær hefur gefið út viðmið um hvenær loka eigi stofnunum vegna óveðurs. Þar kemur m.a. fram að stofnunum bæjarins sé ekki lokað nema algjöra nauðsyn beri til og getur forstöðumaður lokað stofnun af einni eða fleirum af eftirtöldum ástæðum:
Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með veðurspám og fréttum af veðri. Skóla verður ekki aflýst nema tilmæli komi frá Almannavörnum eða lögreglu. Komi ekki tilmæli frá Almannavörnum eða lögreglu verða foreldrar að meta hvort óhætt sé að börn þeirra sæki skóla. Ef foreldrar hafa börn sín heima þá skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll. Hið sama gildir ef foreldrar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa.
Strætisvagnar Ísafjarðarbæjar hafa tekið í notkun talhólfsnúmer, 8781012, þar sem fram kemur hvort og þá hvaða ferðir falla niður.
Foreldrar eru einnig hvattir til að fylgjast vel með á heimasíðu almannavarna.
Samvest, undankeppnin fyrir söngkeppni félagsmiðstöðva, var haldin s.l. föstudag. Þar kepptu 8 atriði um keppnisrétt í aðalkeppnninni, sem haldin verður í mars. Ólöf Máney Ásmundsdóttir varð hlutskörpust, en hún söng lagið Mad world, við undirleik Eydísar Evu Björnsdóttur. Þær stöllur koma frá félagsmiðstöðinni á Flateyri. Í öðru sæti urðu Pétur Ernir Svavarsson og Ólöf Einarsdóttir frá félagsmiðstöðinni Djúpinu á Ísafirði, en þau sungu lagið Find you og sá Pétur einnig um undirleik. Karolína Sif Stefánsdóttir frá félagsmiðstöðinni Tópas í Bolungarvík hafnaði svo í þriðja sæti með lagið Ég leitaði blárra blóma og lék Silfá Sigurðardóttir undir á píanó.
Dómarar þetta árið voru þau Beata Joó, Guðmundur Hjaltason og Magnús Traustason. Á meðan þau réðu ráðum sínum, söng Sigríður Elma Björnsdóttir fyrir gesti, en hún mun keppa fyrir hönd Menntaskólans á Ísafirði í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fer á Akureyri dagana 19. - 21. apríl n.k.
Það verður gaman að fylgjast með sigurvegurum Samvest stíga á stokk fyrir hönd okkar Vestfirðinga dagana 4. - 5. mars n.k. í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Við óskum þeim til hamingju með árangurinn og góðs gengis í lokakeppninni.