VALMYND ×

Fréttir

Skólaferðalag 10. bekkjar

Bakkaflöt í Skagafirði
Bakkaflöt í Skagafirði

Í gær hélt 10. bekkur í sitt árlega skólaferðalag og var ferðinni heitið að Bakkaflöt í Skagafirði, líkt og síðustu ár. Næstu daga mun hópurinn njóta þess sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða og fara í flúðasiglingar, klettaklifur, kayakferðir, sund og fleira. Heimkoma er áætluð á miðvikudag.

Fundað í Split í Króatíu

Kennarahópurinn sem fundar nú í Split í Króatíu
Kennarahópurinn sem fundar nú í Split í Króatíu

Þessa dagana funda þær Bryndís Bjarnason og Halla Magnadóttir í Split í Króatíu, ásamt öðrum samstarfsþjóðum í Erasmus+ verkefninu. Fjallað er um hvernig skólar geta aðstoðað börn sem hafa annað tungumál, við að læra og aðlagast skólasamfélaginu. Einnig skiptast kennarar á góðum hugmyndum og kennsluaðferðum.

Valgreinar næsta vetur

Í dag fá nemendur unglingastigs valblað fyrir næsta vetur, sem skila á í síðasta lagi þriðjudaginn 24. maí n.k. Hægt er nálgast upplýsingar varðandi valið hér á síðu skólans.

Nemendur 5. - 7. bekkjar fengu einnig í hendur sitt valblað sem þau eiga að fylla út heima ásamt foreldrum og skila til kennara í síðasta lagi 26. maí n.k.

Kveðjukaffi 10. bekkjar

Í dag er síðasti formlegi skóladagur 10. bekkjar og bauð starfsfólk skólans árgangnum í kveðjukaffi af því tilefni. Næstu dagar eru prófdagar hjá krökkunum og n.k. sunnudag fara þeir svo í skólaferðalag norður á Bakkaflöt í Skagafirði.

Þakkardagur vinaliða

Vinaliðar vorannar 2016
Vinaliðar vorannar 2016
1 af 2

Í morgun hittust 4. - 7. bekkur á sal skólans til að þakka vinaliðum vel unnin störf frá áramótum. Að því loknu fóru vinaliðarnir ásamt Árna Heiðari Ívarssyni, umsjónarmanni verkefnisins í bíó. Hópurinn er svo væntanlegur aftur í skólann um hádegisbilið.

Vinaliðaverkefnið hefur verið starfrækt hér við skólann í tvö ár og hefur það gengið vonum framar. Því er ætlað, samhliða góðum eineltisáætlunum, að draga úr einelti og auka vellíðan og samheldni nemenda í skólum. Helstu markmið verkefnisins eru að:

  • stuðla að fjölbreyttari leikjum í frímínútum skólanna
  • leggja grunn sem gerir nemendum kleift að tengjast sterkum vináttuböndum
  • minnka togstreitu milli nemenda og
  • hampa góðum gildum, svo sem vináttu, virðingu og því að allir fá að taka þátt.
Árskóli á Sauðárkróki er móðurskóli verkefnisins en fjölmargir grunnskólar víðs vegar um landið taka nú þátt í verkefninu. Þess má geta að Árskóli fékk á dögunum gilda tilnefningu og þar með viðurkenningu Heimilis og skóla fyrir verkefnið.

Vordagskrá

Nú er vorskipulagið orðið klárt með öllum sínum uppbrotsdögum og námsmati. Ef nemandi er fjarverandi þegar próf er lagt fyrir er meginreglan sú að prófið er ekki lagt fyrir nemandann. Kennari gefur þá einkunn sem miðast við ástundun og verkefnavinnu.

Vorskipulagið er hægt að nálgast hér.

Daníel formaður

Í gær kusu nemendur Daníel Wale Adeleye sem formann nemendafélags G.Í. næsta vetur. Varaformaður verður Ásthildur Jakobsdóttir, en þau eru bæði nemendur í 9. bekk. Við óskum þessum efnilegu nemendum til hamingju og velfarnaðar í sínum störfum.

Aðalfundur Nemendafélags G.Í.

Miðvikudaginn 11. maí kl. 8:40 verður aðalfundur nemendafélagsins haldinn í sal skólans. Fundinn sækja nemendur í 7. - 9. bekk og þeir sem eru í stjórn úr 10. bekk. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf ásamt inntöku nýrra félaga úr 7. bekk og framboða til formanns næsta vetrar. Kosning fer síðan fram í kennslustundinni á eftir eða kl. 9:40.
 

Ástmar Helgi og Sigurjón Dagur í úrslit NKG

Ástmar Helgi og Sigurjón Dagur
Ástmar Helgi og Sigurjón Dagur

Grunnskólinn á Ísafirði á eina hugmynd sem komst áfram í nýsköpunarkeppni grunnskólanna. Hugmyndin sem var valin í úrslit er ,,Úti að leika app", en það eru tveir nemendur í 5. bekk þeir  Ástmar Helgi Kristinsson og Sigurjón Dagur Júlíusson sem eiga hana.

Í ár bárust 1750 umsóknir í keppnina og er þetta því frábær árangur hjá drengjunum en einungis 27 hugmyndir komust áfram og var boðið að taka þátt í vinnusmiðju í Reykjavík og úrslitum NKG.

Við óskum þeim Ástmari Helga og Sigurjóni Degi innilega til hamingju og góðs gengis í vinnusmiðjunni. Um leið hvetjum við nemendur sem fara í 5. - 7. bekk næsta haust að halda vel utan um hugmyndirnar sínar og eiga þær fyrir keppnina á næsta ári.

Uppstigningardagur

Helgimynd af himnaför Jesú
Helgimynd af himnaför Jesú

Á morgun, fimmtudaginn 5. maí, er uppstigningardagur, einn af 15 lögbundnum frídögum almanaksársins. Þann dag er himnaför Jesú Krists minnst, 40 dögum eftir páska.