Útivistardagur í Tungudal
Stefnt er að útivistardegi í Tungudal þriðjudaginn 19. febrúar fyrir nemendur í 5.-10. bekk. Gert er ráð fyrir að nemendur verði á skíðasvæðinu frá kl. 10:00-13:30.
Við förum þess á leit við foreldra/forráðamenn, að þeir keyri börnin á skíðasvæðið og sæki þau aftur, sé þess nokkur kostur. Við vitum að ekki eiga allir foreldrar auðvelt með að keyra börnin sín og því bjóðum við upp á eina ferð fyrir nemendur sem ekki eiga annarra kosta völ. Ferð frá skóla verður kl. 9:45 og frá skíðasvæðinu kl 13:40.
Á skíðasvæðinu er hægt að leigja skíði og kostar það um 2000 kr. Þeir nemendur sem ekki fara á skíði geta haft með sér sleða og þotur.
Ekkert gjald verður tekið í lyfturnar og verða þær opnar áfram eftir 13:30 og geta nemendur verið lengur ef þeir óska þess. Mötuneytið mun sjá um hádegishressingu fyrir þá nemendur sem eru í áskrift í mötuneytinu, en aðrir þurfa að koma með nesti að heiman.
Nemendur eru hvattir til að koma með hjálma og þeir nemendur sem ekki eiga hjálma geta fengið þá lánaða á staðnum. Einnig má nota reiðhjólahjálma. Þeir nemendur sem eiga lyftukort eru beðnir að hafa þau með sér.
Foreldrar eru alltaf velkomnir með í útivistarferðir skólans og skíðandi foreldrar vel þegnir.
Deila