Þakkardagur vinaliða
Í morgun hittust 4. - 6. bekkur á sal skólans til að þakka vinaliðum vel unnin störf frá upphafi skólaárs og bauð umsjónarmaður verkefnisins, Árni Heiðar Ívarsson, hópnum í bíó.
Vinaliðaverkefnið hefur verið starfrækt hér við skólann í rúm tvö ár og hefur það gengið vonum framar. Því er ætlað, samhliða góðum eineltisáætlunum, að draga úr einelti og auka vellíðan og samheldni nemenda í skólum. Helstu markmið verkefnisins eru að:
- stuðla að fjölbreyttari leikjum í frímínútum skólanna
- leggja grunn sem gerir nemendum kleift að tengjast sterkum vináttuböndum
- minnka togstreitu milli nemenda og
- hampa góðum gildum, svo sem vináttu, virðingu og því að allir fá að taka þátt.
Eftir áramót tekur svo nýr nemendahópur við keflinu, en kosið er um vinaliða tvisvar á ári.
Deila