Skólasetning
Skólasetning G.Í. verður mánudaginn 21. ágúst 2023 í sal skólans og mæta nemendur sem hér segir:
Kl. 9:00 8., 9. og 10. bekkur
Kl. 9:30 5., 6. og 7.bekkur
Kl. 10:00 2., 3. og 4. bekkur
Nemendur í 1. bekk verða boðaðir sérstaklega ásamt foreldrum í viðtöl til umsjónarkennara. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 22. ágúst hjá öllum nemendum.
Við vekjum athygli á því fyrir nýja bæjarbúa og þá sem eru að skrá börn sín í fyrsta skipti í grunnskóla, að Ísafjarðarbær útvegar grunnskólanemendum sínum ritföng og námsgögn endurgjaldslaust.
Við hlökkum til komandi skólaárs, samstarfsins við nemendur, foreldra og aðra í skólasamfélaginu.
Deila