Skólanum færð gjöf
Önundur Jónsson fyrrverandi yfirlögregluþjónn og hagleikssmiður kom færandi hendi í skólann í gær og færði skólanum tifsög og forláta saumavél. Einnig færði hann skólanum ýmsa smíðamuni sem faðir hans var byrjaður á áður en hann lést og nemendur skólans geta nýtt sér við ýmsa vinnu og muni í framtíðinni. Við færum Önundi kærar þakkir fyrir höfðinglegar gjafir og hlýhug. Það má til gamans geta þess að faðir Önundar var Jón H. Guðmundsson sem var skólastjóri Barnaskólans á Ísafirði hér áður fyrr.
Deila