Samvera hjá 3. og 4. bekk
Í dag voru krakkarnir í 3. og 4. bekk með samverustund. Byrjað var í nýja anddyrinu, þar sem nokkrir krakkar spiluðu á flygilinn og því næst var haldið inn í skólastofu þar sem nemendur buðu upp á fjölmörg tónlistaratriði. Nemendur léku á fiðlu, gítar, þverflautu og harmónikku, auk þess sem sagðir voru brandarar, sýnt leikrit og spilagaldur.
Það er greinilegt að mikið er um virkilega hæfileikaríka krakka í þessum bekkjum og voru þeir mjög duglegir og ófeimnir að koma fram fyrir áhorfendur.
Deila