Bókagjöf
Í morgun kom Barbara Gunnlaugsson, formaður félags Pólverja á Vestfjörðum, færandi hendi og gaf skólanum fjölmargar bækur á pólsku. Bækur þessar eru gjöf frá sendiráði Póllands á Íslandi og eru ýmist eftir pólska eða annarra þjóða höfunda og hafa þá verið þýddar yfir á pólsku.
Skólinn þakkar kærlega þessa rausnarlegu gjöf, sem eflaust á eftir að nýtast vel um ókomin ár.
Deila