Árshátíð G.Í.
Árshátíð Grunnskólans á Ísafirði verður haldin fimmtudaginn 3., föstudaginn 4. og mánudaginn 7. apríl n.k. Þar munu allir árgangar stíga á stokk og sýna atriði sín undir yfirskriftinni Öll ólík - öll eins.
Síðustu dagar hafa einkennst af undirbúningi fyrir árshátíðina, enda er mikið í lagt og allir nemendur skólans koma að skipulagningunni á einn eða annan hátt, þó svo að ekki alveg allir stígi á svið, en langflestir þó. Skólinn býður upp á sex sýningar til að koma öllum að og er aðgangseyrir kr. 1.000 sem rennur í ferðasjóð verðandi 7. bekkjar fyrir skólabúðaferð að Reykjum í Hrútafirði næsta haust.
1. sýning – fimmtudaginn 3. apríl kl. 9:00.
Flytjendur: 1. – 7. bekkur.
Áhorfendur: Nemendur í 1. og 2. bekk og foreldrar/gestir þeirra.
2. sýning – fimmtudaginn 3. apríl kl. 11:00.
Flytjendur: 5.–10. bekkur
Áhorfendur: Nemendur í 5.–7. bekk og gestir (t.d. þeir sem ekki komast á öðrum tíma)
3. sýning – fimmtudaginn 3. apríl kl. 20:00.
Flytjendur: 5.–10. bekkur
Áhorfendur: Foreldrar, gestir og almenningur. Þetta er ekki nemendasýning.
4. sýning – föstudaginn 4. apríl kl. 9:00.
Flytjendur: 1. – 7. bekkur.
Áhorfendur: Nemendur í 3. og 4. bekk og foreldrar/gestir þeirra.
5. sýning – föstudaginn 4. apríl kl. 20:00.
Flytjendur: 7.–10. bekkur,
Áhorfendur: Nemendur í 8.–10. bekk og foreldrar/gestir þeirra
Ball (fyrir nem. 8.-10. bk.) er að lokinni sýningu til miðnættis.
6. sýning – mánudaginn 7. apríl kl. 10:00
Flytjendur: 1.-4.bekkur
Áhorfendur: Tveir elstu árgangar leikskólanna og unglingastig G.Í.
Deila