Útivistardagur
Stefnt er að útivistardegi í Tungudal þriðjudaginn 10. mars fyrir nemendur í 5.-10. bekk. Gert er ráð fyrir að nemendur verði á skíðasvæðinu frá kl. 9:00-13:00 á svigskíðum, gönguskíðum, sleðum eða þotum.
Við förum þess á leit við foreldra að þeir keyri börn sín á skíðasvæðið og sæki þau aftur. Við vitum að ekki eiga allir auðvelt með að keyra börnin sín og því bjóðum við upp á eina ferð fyrir nemendur sem ekki eiga annarra kosta völ. Ferð frá skóla verður kl. 8:45 og frá skíðasvæðinu kl 13:00.
Nánari upplýsingar hafa verið sendar í tölvupósti til allra foreldra.
Deila