Þýskalandsferð
Dagana 13. - 17. apríl var seinni Erasmus ferðin hjá Grunnskólanum á Ísafirði. Hópurinn (8 nemendur og 2 starfsmenn) fór til Þýskalands í borgina Ludenscheid, sem er um það bil tveimur tímum frá Frankfurt, þar sem krakkarnir lentu. Á mánudeginum, eftir flugið og leigubílaferð í borgina,, gerðu krakkarnir ekki mikið heldur fengu sér kvöldmat á gistiheimilinu. Hópurinn hitti síðan nemendur og starfsfólk úr samstarfsskólum og fóru svo að sofa.
Á þriðjudeginum vöknuðu krakkarnir snemma og fengu sér morgunmat rétt áður en þeir tóku lest með Þjóðverjunum og Portúgölunum til Dortmund. Þar fór hópurinn saman á tækni/verklegt safn þar sem krakkarnir mældu mjög mikið með því og var algjör stemning þar. Síðan fóru krakkarnir með Þjóðverjunum að skoða borgina, versla og þess háttar. Eftir það ævintýri fóru Íslendingarnir og Portúgalirnir upp á gistiheimilið, fengu sér kvöldmat og síðan voru íslensku krakkarnir með kósýkvöld saman.
Á miðvikudeginum var heimsókn í Adolf-Reichwein Gesamtschule, skóla Þjóðverjanna, og þar voru Þjóðverjarnir með stutta kynningu um heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna. Eftir að hafa skoðað skólann rölti hópurinn saman að miðborginni, þar sem var borðaður hádegismatur og keppt í ratleik um miðborgina. Krakkarnir hittu borgarstjórann í Ludenscheid og tóku fallega mynd af öllum Erasmus hópnum í ráðhúsinu. Eftir heimsóknina í ráðhúsið var frjáls tími í miðborginni áður en haldið var í partý í skólanum. Þar var mikil stemning og stuð, góður matur og frábær félagsskapur.
Á fimmtudeginum var farið í skógarferð þar sem hópurinn fór í alls konar útileiki og þurfti að leita skjóls fyrir rigningu inni í risastórri skemmu, sem áður var notuð af belgíska hernum til að geyma skriðdreka. Eftir hádegið þennan dag var farið á vísindasafnið Phanomenta þar sem krakkarnir fengu að prófa ýmis tæki og tól sem tengjast vísindum og enn og aftur var það ótrúlega gaman. Um kvöldið fengu íslensku krakkarnir að fara út með þýsku krökkunum, þau skemmtu sér mjög vel, fengu sér ís og svo var komið að kveðjustund.
Á föstudeginum var komið að heimferð, þá var vaknað snemma til að fá sér morgunmat og klára að pakka niður. Hópurinn tók svo leigubíl til Frankfurt, þaðan sem var flogið til Íslands og frábærri ferð lauk á BSÍ seinni partinn á föstudeginum.
Deila