VALMYND ×

Úrslit Pangea 2026

Í vetur tóku nemendur 8. og 9. bekkjar þátt í Pangea stærðfræðikeppni sem er fyrir alla nemendur áttundu og níundu bekkja grunnskóla landsins. Aðalmarkmið keppninnar er að vekja áhuga hjá ungu fólki á stærðfræði, hvetja þau sem halda að stærðfræði sé of erfið til dáða með því að sýna þeim að þau geti afrekað miklu ef þau reyna, og hvetja efnilegustu nemendurna til áframhaldandi afreka.

Öll vinna við skipulagningu og framkvæmd keppninnar er unnin af sjálfboðaliðum úr Félagi Horizon og raungreina- og verkfræðinemum. Kennarasamband Íslands hefur verið skipuleggjendum innan handar við gerð prófanna.

Nú er ljóst að tveir nemendur G.Í. komust í úrslit Pangea 2026. Það eru systkinin Svaha Halldórsdóttir og Nirvaan Halldórsson. Þetta er frábær árangur hjá þeim og erum við innilega stolt af þeim systkinum og óskum þeim góðs gengis í úrslitakeppninni, sem haldin verður 18.apríl í Menntaskólanum við Hamrahlíð.

Deila