Nirvaan í 2.sæti í Pangea
Eins og fram kom í fyrri frétt komust systkinin Svaha Halldórsdóttir og Nirvaan Halldórsson í úrslit Pangea stærðfræðikeppninnar í síðustu viku. Úrslitakeppnin var svo haldin s.l. laugardag og gerði Nirvaan sér lítið fyrir og náði þar 2.sæti nemenda í 8.bekk.
Við erum virkilega stolt af árangri þeirra systkina og óskum þeim innilega til hamingju með glæsilegan árangur.
Í þremur efstu sætum í hvorum árgangi voru
8. bekkur
1. sæti - Kormákur Jónas Níelsson, Hagaskóla
2. sæti - Nirvaan Halldórsson, Grunnskólanum á Ísafirði
3. sæti - Emil Kári Össurarson, Foldaskóla
9. bekkur
1. sæti - Stefán Dagur Pálmason, Kópavogsskóla
2. sæti - Úlfur Martino Solimene, Laugalækjarskóla
3. sæti - Hákon Jensson, Víkurskóla