VALMYND ×

Sprengjum ímyndunaraflið

1 af 3

Í vetur hefur Kjartan Ágúst Pálsson, kennari, boðið nemendum miðstigs upp á valgreinina ,,Sprengjum ímyndunaraflið" þar sem nemendur fá að kynnast hinum ýmsu tilraunum.

Í gær spreyttu nemendur sig á því að búa til eldflaugar úr 2ja lítra gosflöskum sem þurftu að geta staðið stöndugar, með uggum og oddi framan á. Markmiðið var að hafa þær sem léttastar til að ná sem mestri drægni. Að því búnu var þrýstiloki festur á með röri, sem fyllt var af matarsóta og settur inn í flöskuna. Þétt var að með lokanum eftir að búið var að setja Edik í flöskuna, þannig að það blandaðist ekki fyrr en flaskan var hrist. Þá sáu nemendur hvernig edik og matarsódi mynda gas eða koltvísýringsgas, sem myndar þannig þrýsting þar til tappinn eða þrýstilokinn gaf sig og þeytti henni upp.

Deila