VALMYND ×

Góð þátttaka í hjólastrætó

1 af 4

Í morgun buðu foreldrar upp á hjólastrætó í skólann, þar sem strætóleiðin var farin á hjólum úr Holtahverfi og út í skóla. Farið var af stað úr firðinum kl. 7:15 og var virkilega góð þátttaka nemenda og foreldra, sennilega um 150 manns!

Við þökkum Hebu Dís Þrastardóttur og Antoni Helga Guðjónssyni kærlega fyrir þessa skemmtilegu hugmynd, sem er að erlendri fyrirmynd -  og fyrir að koma henni í framkvæmd. Einhverjir foreldrar höfðu að orði að það hefði aldrei verið jafn auðvelt að vekja börnin og í morgun! Við vonum svo sannarlega að þessi viðburður verði endurtekinn að ári.

Deila