VALMYND ×

Sveitaferð 3.bekkjar

Núna í vor hefur 3. bekkur verið að læra um íslensku húsdýrin. Hápunktur þeirrar vinnu var svo heimsókn í Hóla í Dýrafirði 20. maí síðastliðinn. Þar fengu nemendur að kíkja í fjárhúsin hjá Ástu og Berta og sjá sauðburð í fullum gangi. Allir sem vildu fengu að klappa lömbum og nokkrir nemendur voru svo heppnir að sjá lamb koma í heiminn. Á heimleiðinni var stoppað á Víkingasvæðinu á Þingeyri þar sem hópurinn borðaði nesti og fékk tækifæri til að leika sér í þessu skemmtilega umhverfi. Það voru sáttir nemendur sem skiluðu sér heim í skólann í lok dags. ,,Þetta er sko besti dagur lífs míns” sagði einn drengurinn.

Deila