Skíða- og útivistardagur hjá 5.-10.bekk
Föstudaginn 24.apríl verður skíða- og útivistardagur í Tungudal frá kl. 9:00-13:00 hjá öllum nemendum 5. - 10. bekkjar og er því engin kennsla í húsi hjá þeim nemendum.
Við hvetjum þá foreldra sem geta til að skutla sínum börnum, en við bjóðum upp á eina rútu frá skóla kl. 9:00 og heim aftur kl. 13:00.
Nemendur geta komið með svigskíði, bretti, gönguskíði, þotur, sleða eða hvað sem er til að renna sér á og ættu því allir að geta notið útivistarinnar. Hægt er að fá lánuð svigskíði og klossa endurgjaldslaust í skíðaskálanum.
Nemendur verða að koma vel nestaðir, þar sem ekki er boðið upp á mat á vegum skólans.
Staðan er viðkvæm í Tungudal þar sem snjórinn er á miklu undanhaldi, en starfsmenn gera allt sem í þeirra valdi stendur til að hægt sé að njóta útivistarinnar sem best.
Á morgun er svo sumardagurinn fyrsti og engin kennsla.
Deila