VALMYND ×

Gróska í 2.bekk

Fyrir um ári fékk starfsmaður ásamt nemendum í 2.ÁJ þá hugmynd að setja niðu paprikufræ innan úr papriku sem nemandi kom með í nesti. Starfsmaðurinn tók hluta af uppsprettunni með sér heim í skólalok s.l. vor og kom svo aftur með hana í nýjum potti í skólann í haust. Nemendur hafa fylgst spenntir með vextinum og tekið þátt eftir áhuga. Í vetur hefur plöntunni verið umpottað nokkrum sinnum og hlúð að henni á ýmsan hátt. Nú ber hún 22 paprikur í mismunandi stærðum. Þetta hefur verið áhugavert ferli og góður lærdómur fyrir nemendur og augnayndi í þokkabót.

 

Deila