Skíða- og útivistardagur
Stefnt er að útivistardegi í Tungudal miðvikudaginn 11. mars fyrir nemendur í 5.-10. bekk. Gert er ráð fyrir að nemendur verði á skíðasvæðinu frá kl. 10:00-13:30.
Við förum þess á leit við foreldra að þeir keyri börn sín á skíðasvæðið og sæki þau aftur. Við vitum að ekki eiga allir auðvelt með það og því bjóðum við upp á eina ferð fyrir nemendur sem ekki eiga annarra kosta völ. Ferð frá skóla verður kl. 9:45 og frá skíðasvæðinu kl 13:40.
Á skíðasvæðinu er hægt að leigja skíði og kostar það um 1500 kr. Þeir nemendur sem ekki fara á skíði geta haft með sér sleða og þotur.
Sú nýbreytni verður í ár að útbúinn verður gönguhringur við skálann fyrir þá sem vilja mæta með gönguskíði. Hægt verður að leigja gönguskíði.
Ekkert gjald verður tekið í lyfturnar. Mötuneytið mun sjá um hádegishressingu fyrir þá nemendur sem eru þar í áskrift. Aðrir þurfa að koma með nesti að heiman.
Nemendur eru hvattir til að koma með hjálma og þeir sem ekki eiga hjálma geta fengið þá lánaða á staðnum (það má nota reiðhjólahjálma).
Foreldrar eru alltaf velkomnir með í útivistarferðir skólans og sérstaklega vel þegið að fá skíðandi foreldrar.
Deila