VALMYND ×

Íþróttahátíðin í Bolungarvík

Hin árlega íþróttahátíð í Bolungarvík verður haldin fimmtudaginn 10. október.  Hátíðin verður sett kl. 10:00 og lýkur svo með balli frá kl. 20:00 - 22:30. Ef allt gengur að óskum verður keppni lokið um kl.18:45 og hægt að nota tímann fram að balli til að borða.
Allir skólar fá afnot af kennslustofu sem verður læst þar sem hægt er að geyma dót og verðmæti. Þeir nemendur sem eru í mataráskrift fá afhentar samlokur við litla anddyri skólans (nær íþróttahúsinu) milli 12:00 og 13.00. Sjoppa verður á staðnum þar sem hægt verður að kaupa samlokur, drykki og annað ásamt aðgöngumiðum á ballið, en miðaverð er kr. 1.000.
Rúta fer frá Holtahverfi kl. 9:30 og fer strætóleið út í bæ og tekur upp nemendur á sínum stoppistöðvum. Önnur rúta fer frá skólanum kl. 9:30, tekur upp nemendur í króknum og á strætóstoppistöð í Hnífsdal. Rúta fer frá Bolungarvík kl. 19:00 og að loknu balli kl. 22:40. Kennarar/starfsmenn frá skólanum verða á svæðinu allan tímann.
Föstudaginn 11. október fá nemendur á unglingastigi frjálsa mætingu í fyrstu kennslustund.
Við treystum því að allir mæti með bæði góða skapið og njóti dagsins.

Deila