Heimsókn í Edinborgarhúsið
Í vikunni þáðu nemendur í 5. og 6. bekk heimboð í menningarhúsið Edinborg. Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir, verkefnastjóri hússins tók á móti nemendum og sagði þeim frá tilgangi menningarhússins. Einnig kynnti hún margmiðlunarsýninguna Útsýni, sem er verk listakonunnar Kristjönu Rósar Oddsdóttur Guðjohnsen, en sýningin hefur staðið yfir frá því í febrúar.
Nemendur kunnu vel að meta sýninguna og eru margs vísari um hugsun listakonunnar á bak við verkin.
Deila