Heimsókn á Suðureyri
Allt frá árinu 2008 hafa fyrirtækin Klofningur og Íslandssaga á Suðureyri boðið nemendum 1.bekkjar í heimsókn til að skoða fiskvinnslurnar hjá þeim. Súgfirðingar eru miklir höfðingjar heim að sækja og hafa öll þessi ár tekið einstaklega vel á móti okkar hópum og leyst þá út með gjöfum, þar sem hver og einn nemandi fékk kassa með ýsuflökum með sér heim.
Það er okkur afar dýrmætt að eiga slíka bakhjarla, sem eru tilbúnir til að taka á móti nemendahópum okkar og fræða þá um þá vinnslu og verðmætasköpun sem er hér á svæðinu. Við þökkum Klofningi og Íslandssögu enn og aftur fyrir frábærar móttökur.
Deila