VALMYND ×

Nemendur 1.bekkjar fá hjálma að gjöf

Í gær komu Kiwanismenn færandi hendi í skólann og gáfu öllum nemendur 1.bekkjar reiðhjólahjálma að gjöf. Með því móti vilja þeir vernda börnin í umferðinni líkt og þeir hafa gert með sínu forvarnaverkefni um árabil.

Það voru glaðir eigendur nýrra reiðhjólahjálma sem fóru heim úr skólanum í gær og vonum við að þeir verði duglegir að nýta sér þessa góðu gjöf.

Deila