Karma Íslandsmeistari í skólaskák
Landsmótið í skólaskák var haldið um s.l. helgi í Ólafsvík. Grunnskólinn á Ísafirði átti þar þrjá keppendur, sem stóðu sig allir með mikilli prýði. Hilmir Örn Atlason varð í 9.sæti í yngsta flokki (1.-4.bekk), Nirvaan Halldórsson varð í 10.sæti í elsta flokki (8.-10.bekk) og Karma Halldórsson sigraði í miðflokki (5.-7.bekk) eftir bráðabana.
Við óskum Karma innilega til hamingju með sigurinn og þeim öllum með frábæra frammistöðu.
Deila