VALMYND ×

Breytingar á skíða- og útivistardegi

BREYTING Á SKÍÐA- OG ÚTIVISTARDEGI Á MORGUN
Því miður þurfum við breyta skíða- og útivistardeginum hjá 5.-10. bekk á morgun, þar sem snjór er orðinn mjög lítill í Tungudal og hefur hörfað mjög hratt í dag. Það er því ekkert skíðafæri fyrir byrjendur og mjög þungt á efra svæði.
Við höfum því ákveðið að færa okkur upp á Seljalandsdal á morgun frá kl. 10:00 - 13:00. Við hvetjum alla til að koma með gönguskíði, sleða, þotur og slíkt til að renna sér á. Eitthvað er til af gönguskíðum til láns upp frá, en ekki er hægt að treysta á þá lausn. Við vonum að allir geti komið með eitthvað til að renna sér á og geti þannig notið dagsins sem best.
 
Rútan fer frá skóla kl. 10:00 og til baka kl. 13:00 og biðjum við alla að koma með gott nesti með sér.
Skóladagur 5. - 10. bekkjar er því frá kl. 10:00 - 13:00 á morgun og þurfa þeir nemendur ekki að mæta á Austurveginn.
Við biðlum til þeirra foreldra sem hafi færi á, að skutla sínum börnum upp eftir.
Deila