VALMYND ×

Veðurviðvaranir

Þó veðurspá sé slæm skal tekið fram að skólinn er opinn og vonumst við til að geta sýnt allar árshátíðarsýningar sem eru á dagskrá í dag. Einnig minnum við á reglur Ísafjarðarbæjar:

Þegar gular viðvaranir eru í gildi hjá Veðurstofu Íslands skulu foreldrar ávallt að meta sjálfir hvort óhætt sé að senda barn í skólann. Í slíkum aðstæðum er alltaf einhver hluti starfsmanna mættur í skólann til að taka á móti þeim börnum sem mæta.

Foreldrar skulu meta hvort barn hafi sjálft getu til að komast frá grunnskóla í lok dags, eða hvort foreldri þurfi að sækja barn í grunnskóla/dægradvöl.

Þegar appelsínugular eða rauðar viðvaranir eru í gildi hjá Veðurstofu Íslands þá gilda þau eindregnu tilmæli að foreldrar fylgi yngri börnum til skóla eða að stoppistöð skólabíls og yfirgefi þau ekki fyrr en þau eru í öruggum höndum starfsfólks.

Sé barn heima vegna veðurs eða ófærðar, þegar skóla hefur ekki verið aflýst, skal forráðamaður tilkynna það í síma, tölvupósti eða á Mentor/Karellen. Aðstæður fólks til að koma börnum á milli heimils og skóla eru ólíkar og er tekið tillit til þess. Tilvik sem þessi eru eðlileg forföll og eru skráð sem slík.

 

Deila