VALMYND ×

Sólmyrkvaleikar

Þann 12.ágúst n.k. verður sögulegur sólmyrkvi á Íslandi, sem mun sjást allra best á Vestfjörðum. Púkinn - barnamenningarhátíð á Vestfjörðum, stendur af því tilefni fyrir hátíðarsýningum. Yfirskrift sýninganna er Sólmyrkvaleikar, þar sem verkefni tengd vísindum, listum og þjóðsögum renna saman í eitt stórt ævintýri.

Föstudaginn 8.maí n.k. er sýning í Ísafjarðarbíói kl. 16:30, þar sem Stjörnu-Sævar útskýrir hvað sólmyrkvi er og gestir eru leiddir inn í heillandi þjóðsögur um fyrirbærið. Þá verða einnig frumflutt grípandi tónverk og töfrandi stuttmyndir sem vestfirskir krakkar unnu í vinnusmiðjum fyrr í vetur. Þetta er skemmtun fyrir alla fjölskylduna og börn á öllum skólastigum og hvetjum við alla til að mæta og taka þátt í gleðinni.

Deila