Íþrótta- og leikjadagur hjá 5. - 10. bekk
Í dag er íþrótta- og leikjadagur hjá 5. - 10. bekk á Torfnesi, þar sem nemendur spreyta sig í ýmsum leikjum, samveru og samvinnu. Leikir þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, auk þess sem þeir bæta líkamlega færni, andlega vellíðan og heilbrigði. Mikilvægast af öllu er þó gleðin sem skapast á dögum sem þessum í góðu veðri, góðum félagsskap og dásamlegu umhverfi. Við vonum að allir komi heim endurnærðir á sál og líkamlega eftir góðan dag.
Deila