Skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar
Í morgun voru valdir 6 nemendur úr 7.bekk til að keppa fyrir hönd skólans á Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar, sem fram fer í Bolungarvík fimmtudaginn 19.mars. Alls lásu 12 nemendur í morgun sögubrot og tvö ljóð, en allir nemendur 7.bekkjar hafa æft framsögn frá því á Degi íslenskrar tungu 16.nóvember s.l.
Dómarar í dag voru þau Gylfi Ólafsson, Rannveig Halldórsdóttir og Esther Ósk Arnórsdóttir. Þeim var svo sannarlega vandi á höndum, en niðurstaðan varð sú að þau Aino Magnea Norðdahl Widell, Baldur Ernir Stefánsson, Eiríkur Bjarkar Jónþórsson, Emilía Dögun Emilsdóttir, Glódís Ingudóttir og Guðrún Eva Þorvaldsdóttir verða okkar fulltrúar í keppninni. Til vara verða þær Emelía Eivör Daníelsdóttir og Kristjana Malen Pálsdóttir.
Við erum virkilega stolt af öllum nemendum 7.bekkjar sem hafa tekið miklum framförum í frasögninni síðustu vikurnar og hlökkum til að fylgjast með í næstu viku.
Deila