Nemendum 5. bekkjar færðar kortabækur að gjöf
Grunnskólinn á Ísafirði færði nemendum 5. bekkjar kortabækur að gjöf nú í vikunni. Um nýja útgáfu er að ræða, aukna og endurskoðaða af Kortabók handa grunnskólum sem fyrst kom út árið 1992. Bókin er sem fyrr unnin í samstarfi við Liber - útgáfuna í Stokkhólmi en Íslandskort eru að mestu fengin frá Landmælingum Íslands og Jean-Pierre Biard kortagerðarmanni. Á bókarkápu er kort Guðbrands biskups Þorlákssonar sem kom út í hollensku kortasafni árið 1590. Kortið var lengi undirstaða þeirra myndar sem birtist af landinu, skreytt fjölda mynda af ófreskjum og sæskrímslum og er skemmtilegt að bera það saman við nútíma kort og myndir.
Það er ósk skólans að bókin nýtist nemendum vel í öllu frekara námi, enda um mjög eigulega bók að ræða.
Deila