VALMYND ×

Heimsókn í varðskipið Freyju

1 af 2

Í ár er Landhelgisgæsla Íslands 100 ára. Í morgun var nemendum skólans boðið af því tilefni í heimsókn í varðskipið Freyju, sem liggur við bryggju hér á Ísafirði. Skipið kom nýtt til landsins árið 2021 og er afar öflugt til að sinna löggæslu, leit og björgun á krefjandi hafsvæðum umhverfis Ísland.

Við þökkum Landhelgisgæslunni kærlega fyrir gott boð og frábærar móttökur á þeim 350 nemendum sem áttu heimangengt í morgun.

Deila