G.Í. í Skólahreysti
Í kvöld keppir G.Í. í 8.undankeppni Skólahreysti, ásamt 11 öðrum skólum. Það er mikil stemning í hópnum og fór tæplega 50 manna hópur nemenda í morgun áleiðis suður til að hvetja okkar fólk. Keppendur fyrir hönd skólans eru þau Saga Björgvinsdóttir, María Sif Hlynsdóttir, Hilmir Norðfjörð og Kamil Fortuna. Til vara eru þau Kristín Eik Sveinbjörnsdóttir og Sigurjón Kári Eyjólfsson.
Við hvetjum alla til að fylgjast með krökkunum okkar í beinni útsendingu á RÚV kl. 19:45 í kvöld.
Deila