Frábær árangur í Skólahreysti
Krakkarnir okkar í Skólahreysti stóðu sig frábærlega vel í undankeppninni í gær. Niðurstaðan varð 2.sæti riðilsins, sem er mjög góður árangur í sterkum riðli. Saga Björgvinsdóttir gerði sér lítið fyrir og setti Íslandsmet í hreystigreip, þar sem hún hékk í heilar 30,06 mínútur! Við erum afar stolt af þessum árangri liðsins og ekki má gleyma stuðningsliðinu sem var mjög öflugt á pöllunum. Innilega til hamingju Saga, Hilmir, María Sif, Kamil, Kristín Eik og Sigurjón. Ekki má heldur gleyma þjálfurum liðsins, þeim Árna Heiðari Ívarssyni og Axel Sveinssyni.
Það var Heiðarskóli sem sigraði riðilinn og komst þannig sjálfkrafa í úrslit. Það er þó enn von fyrir okkar lið að komast þangað, þar sem nokkur stigahæstu liðin fyrir neðan sigurvegara riðlanna munu komast áfram. Það kemur í ljós eftir helgi.
Deila