5.-7.bekkur á Sólmyrkvaleikum
Dagana 24. - 25. febrúar fóru Sólmyrkvaleikarnir fram í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, en leikarnir eru hluti af barnamenningarhátíðinni Púkanum, sem stýrt er af Vestfjarðastofu.
Sólmyrkvaleikarnir fóru þannig fram að nemendur 5. - 7. bekkjar byrjuðu á fyrirlestri hjá Sævari Helga Bragasyni sem er betur þekktur í þeirra hópi sem Stjörnu-Sævar. Hann sagði þeim á sinn innblásna hátt frá almyrkva á sólu sem Vestfirðingar verða í kjöraðstæðum til að upplifa þann 12. ágúst næstkomandi – í eina sinn á lífsleiðinni fyrir þau sem fædd eru eftir 1954.
Að fyrirlestri loknum tóku við vinnustofur þar sem allir fengu að taka þátt í skuggaleikhússmiðju með Aude og Emblu frá Þykjó, vísindasmiðju með Sævari og Ninnu frá Þykjó og tónlistarsmiðju með Sigga og Ingibjörgu. Með í för var kvikmyndagerðarmaðurinn Janus Bragi sem myndaði það sem fram fór til að skapa úr því stuttmynd sem sýnd verður þegar Púkinn fer fram dagana 27. apríl-8. maí. Þar mun líka hljóma lag sem Siggi og Ingibjörg hafa sett saman upp úr tónlistarsmiðjunum og útsett.
Ungmennaráð Vestfjarða valdi hafið sem þema Púkans í ár og vildu þau jafnframt sjá samspil lista og vísinda, og samstarf eiga sér stað. Í allri vinnu Þykjó í kringum þetta verkefni hefur verið lögð áhersla á að uppfylla óskir ungmennaráðsins.
Deila