1.bekkingar fá reiðhjólahjálma að gjöf
Í morgun komu þeir Gunnlaugur Gunnlaugsson og Gunnlaugur Finnbogason frá Kiwanisklúbbnum Básum og afhentu 1.bekkingum reiðhjólahjálma að gjöf. Markmið hjálmaverkefnis Kiwanis hefur frá upphafi verið að stuðla að öryggi barna í umferðinni með því að gefa nemendum 1.bekk reiðhjólahjálma. Hjálmarnir nýtast einnig vel við notkun hjólabretta og hjólaskauta.
Það voru glaðir krakkar sem fóru heim með hjálmana sína í dag og hvetjum við alla til að merkja þá vel.
Deila