Vorinu fagnað með myndlist
Í dag tóku nemendur í 5. og 7. bekk þátt í að kveðja veturinn og bjóða vorið velkomið. Nemendur gerðu myndir af kakóbollum með nokkrum aðferðum og þurftu að nota lita- og formfræðiaðferðir. Mynduppbygging var rædd, en með þessu verkefni efldu þau fínhreyfingar, notkun olíupastellita, mynsturgerð og klippimyndalist (Collage), sem er aðferð sem notuð var í Abstrakt-list, Kúbisma, Súrreallisma og Pop-list.
Afraksturinn var skemmtilegur eins og sjá má hjá þessu upprennandi listafólki, sem naut handleiðslu Solveigar Eddu Vilhjálmsdóttur, myndlistarkennara.
Deila