Þemadagar 15. og 16. nóvember
Hanna Þórey, 6. bekk og Una Salvör, 5. bekk skrifa:
Við erum í fjölmiðlahóp og búnar að flakka mikið og taka myndir. Á ýmsum stöðum eru leikir t.d. í blómagarðinum er ratleikur og þrautir í gamla gaggó. Við kíktum á lummubakstur, þar fengum við að gera lummur og það heppnaðist mjög vel hjá okkur. Svo er súmba í dansstofunni og diskó-brennó í íþróttasalnum, þar er svaka stuð.
Deila