Páskaleyfi
Þá er 6 glæsilegum árshátíðarsýningum lokið og erum við afar stolt af okkar nemendum og starfsfólki. Eftir daginn í dag hefst páskaleyfi sem stendur til 6.apríl.
Kennsla hefst að loknu páskaleyfi þriðjudaginn 7.apríl samkvæmt stundaskrá. Við vekjum athygli á því að sundkennslan hefst að nýju eftir langa bið.
Við óskum starfsfólki, nemendum og fjölskyldum þeirra sem og öllum velunnurum gleðilegrar páskahátíðar!
Deila