Öskjuverkefni í 10.bekk
Undanfarið hafa nemendur 10.bekkjar verið í skemmtilegu hópverkefni í stærðfræðinni, þar sem reynir á margskonar hæfni. Megintilgangur náms og kennslu í stærðfræði er að nemendur öðlist alhliða hæfni og skilning til að nota stærðfræði sem verkfæri í fjölbreyttum og margs konar tilgangi og við ólíkar aðstæður í daglegu lífi, leik og starfi. Til þess þurfa þeir að fá tækifæri til að ígrunda ólíkar aðferðir og líkön sem nýtast við lausn viðfangsefna og leggja mat á niðurstöður. Verkefni þurfa að vera fjölbreytt og áhugaverð og byggja upp hæfni þar sem nemendur eru virkir þátttakendur.
Í umræddu hópverkefni átti hver hópur að hanna og búa til ösku utan um jólapakka sem er u.þ.b. 2-20 dl. Reikna átti allt sem hægt er í sambandi við viðfangsefnið og sýna útreikninga, sköpun og frumleika ásamt viðeigandi hugtökum stærðfræðinnar. Einnig átti hver hópur að halda dagbók yfir vinnuna og verkefnaskiptingu. Til að fá fullt fyrir verkefnið þurftu öll þessi atriði að koma fyrir: sívalningur, þrístrendingur eða ferstrendingur, keila eða pýramídi, rúmmál og yfirborðsflatarmál, a.m.k. 2 tegundir flutninga og regla Pýþagórasar.
Afraksturinn var glæsilegur eins og sjá má á meðfylgjandi myndum og voru nemendur vitanlega alsælir með vinnuna og árangurinn.
Deila