Niðurstöður nemendaþings
Frá árinu 2013 höfum við haldið nemendaþing annað hvert skólaár. Markmið þessara umræðuþinga eru fjögur;
- að veita nemendum tækifæri til að taka þátt í lýðræðislegri samræðu um málefni sem hefur merkingu fyrir daglegt líf þeirra og skipulag skólastarfsins
- að efla vitund nemenda um eigin áhrif í skólastarfinu
- að fá fram rödd og sjónarhorn nemenda í ýmsum málaflokkum
- að fá fram tillögur frá nemendum um hvað hægt er að gera til að hafa jákvæð áhrif á deglegt starf í skólanum.
Þingin hafa verið sett upp með formlegu sniði, þar sem borðstjórar hafa komið úr efri bekkjum og fengið sérstaka þjálfun í að virkja samnemendur til þátttöku og að stýra umræðum þannig að allir fái að tjá sig.
Viðfangsefnin hafa verið þessi: skólasamfélagið, kynjajafnrétti, samfélagsmiðlar, samskipti, símanotkun, einelti, og hvernig gerum við góðan skóla betri.
Sjöunda nemendaþing skólans var haldið 27.janúar 2026 og var viðfangsefnið líðan og hegðun. Í fyrsta skipti í sögu nemendaþinganna tók allur skólinn þátt frá 1.bekk og upp úr, en hingað til hefur yngsta stigið ekki verið með. Það reyndi því enn frekar á unglingana okkar að stýra þeim yngstu og fá fram svörun frá öllum. Nemendum skólans var skipt í 14 hópa á hverju stigi, eða samtals 42 hópa og komu hópstjórar úr 7. - 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru virðing, samhugur og menntun og var það kjarninn í umræðunum. Hópstjórar hófu starfið með því að lesa úr barnasáttmálanum um réttindi barna, þar sem segir að börn eigi rétt á því að tjá sig frjálslega um öll málefni sem hafa áhrif á líf þeirra og að fullorðnir eigi að hlusta og taka mark á þeim.
Í framhaldinu voru lagðar fyrir 6 spurningar:
1. Virðing - hvernig sjáum við hana, heyrum hana og finnum hana?
2. Samhugur - hvernig sjáum við hann, heyrum hann og finnum hann?
3. Góð líðan - hvernig sjáum við hana, heyrum hana og finnum hana?
4. Hvað getur þú gert til að þér líði betur?
5. Hvað getur starfsfólk skólans gert til að þér líði betur?
6. Hvað getur þú gert til að öðrum líði betur?
Nemendur tjáðu sig allir á post-it miða, sem voru settir við hverja spurningu. Nemendaráð fékk svo það hlutverk að taka saman niðurstöður allra 42 hópanna. Nú í vikunni fór nemendaráð svo inn í alla bekki og kynnti niðurstöðurnar, sem voru svo hengdar upp á öllum göngum skólans. Kennarar munu svo nýta þær enn frekar til umræðna og ígrundunar inni í bekkjum.
Niðurstöðurnar eru skýrar hjá nemendum og má sjá kjarnann í þeim innrammaðan á hverju spjaldi. Vinnan sem fram fór í hópunum er einnig ómetanleg, þar sem allir nemendur höfðu rödd, sem hefur svo jákvæð áhrif á skólastarfið.
Deila