VALMYND ×

Myndmennt í 3. bekk

Nemendur 3.bekkjar vinna í myndmennt út frá kveikju við eigin listsköpun, bæði í tví- og þrívíðu formi samkvæmt Aðalnámskrá. Einnig læra þeir ýmis hugtök og heiti myndlistar og styrkja fínhreyfingar sem og ímyndunaraflið. Þetta hafa þeir þjálfað undir leiðsögn Solveigar Eddu Vilhjálmsdóttur, myndlistarkennara.

Í morgun var einn hópur árgangsins að vinna með mynsturgerð og klippingu, ýmist í svarthvítu eða í lit og úr urðu hin litríkustu og fjölbreyttustu verk eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Deila