Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2026
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á norðanverðum Vestfjörðum fór fram í Félagsheimili Bolungarvíkur í gær, þriðjudaginn 7. apríl. Í henni tóku 10 nemendur úr grunnskólunum á svæðinu þátt og lásu upp úr bókinni Birtingur og símabannið mikla eftir Gunnar Helgason, ljóð eftir Vilborgu Dagbjartasdóttur og ljóð að eigin vali.
Keppnin var mjög spennandi og nemendurnir stóðu sig allir með stakri prýði. Það var því erfitt verkefni sem dómarar stóðu frammi fyrir. Niðurstaðan varð þó sú að í fyrsta sæti varð Aino Magnea Norðdahl Widell, í öðru sæti varð Guðrún Eva Þorvaldsdóttir og í þriðja sæti Eiríkur Bjarkar Jónþórsson, en þau eru öll nemendur Grunnskólans á Ísafirði.
Upplesararnir fengu allir viðurkenningarskjal og rós, en keppendur í verðlaunasætum fengu auk þess gjafir frá Pennanum/Eymundsson og Landsbankanum.
Við óskum öllum lesurum innilega til hamingju með frábæra frammistöðu og kennurum og foreldrum sem hjálpuðu til við þjálfunina.
Deila