Árshátíð skólans
Miðvikudaginn 25. og fimmtudaginn 26.mars verður árshátíð skólans haldin. Í kringum slíkan viðburð þarf mikla skipulagningu starfsfólks, enda töluvert umstang við að koma sem flestum á svið í rúmlega 400 nemenda skóla. Auk þess að stíga á svið þurfa nemendur að sjá um skreytingar, hljóð, tónlist, lýsingu í sal, förðun, miðasölu, kynningar og dyravörslu, þannig að það er í mörg horn að líta.
Yfirskrift árshátíðarinnar í ár er ,,Sveitin" og verður skemmtilegt að sjá mismunandi útfærslur árganga á því viðfangsefni.
Sýningar eru þessar:
Miðvikudagur 25.mars
1. sýning kl. 9:00. Flytjendur: 1.– 6. bekkur. Áhorfendur: Nemendur í 1. og 2. bekk ásamt gestum.
2. sýning kl. 11:00. Flytjendur: 5.–10. bekkur. Áhorfendur: Nemendur í 5.– 6. bekk ásamt gestum.
3.sýning kl.20:00. Flytjendur: 7.-10.bekkur. Áhorfendur: Nemendur í 7.– 8. bekk ásamt gestum.
Fimmtudagur 26.mars
4.sýning kl. 9:00. Flytjendur: 1. – 6. bekkur. Áhorfendur: Nemendur í 3. og 4. bekk ásamt gestum.
5.sýning kl. 11:00. Flytjendur: 1.- 4. bekkur. Áhorfendur: Leikskólabörn og unglingastig.
6.sýning kl. 20:00. Flytjendur: 7.–10. bekkur. Áhorfendur: Nemendur í 9.–10. bekk ásamt gestum.
Miðaverð er kr. 1.000 og greiðir hver og einn eitt gjald, þó svo að einhverjir þurfi jafnvel að koma á fleiri en eina sýningu til að sjá sín börn. Andvirði miðaverðs fer í tækjasjóð.
Við biðjum foreldra og aðra að virða tímaplanið eins og hægt er, til að forðast örtröð.
Deila