Grunnskólinn á Ísafirði - Fréttir
BREYTING Á SKÍÐA- OG ÚTIVISTARDEGI Á MORGUN
Því miður þurfum við breyta skíða- og útivistardeginum hjá 5.-10. bekk á morgun, þar sem snjór er orðinn mjög lítill í Tungudal og hefur hörfað mjög hratt í dag. Það er því ekkert skíðafæri fyrir byrjendur og mjög þungt á efra svæði.
Við höfum því ákveðið að færa okkur upp á Seljalandsdal á morgun frá kl. 10:00 - 13:00. Við hvetjum alla til að koma með gönguskíði, sleða, þotur og slíkt til að renna sér á. Eitthvað er til af gönguskíðum til láns upp frá, en ekki er hægt að treysta á þá lausn. Við vonum að allir geti komið með eitthvað til að renna sér á og geti þannig notið dagsins sem best.
Rútan fer frá skóla kl. 10:00 og til baka kl. 13:00 og biðjum við alla að koma með gott nesti með sér.
Skóladagur 5. - 10. bekkjar er því frá kl. 10:00 - 13:00 á morgun og þurfa þeir nemendur ekki að mæta á Austurveginn.
Við biðlum til þeirra foreldra sem hafi færi á, að skutla sínum börnum upp eftir.
Fyrir um ári fékk starfsmaður ásamt nemendum í 2.ÁJ þá hugmynd að setja niðu paprikufræ innan úr papriku sem nemandi kom með í nesti. Starfsmaðurinn tók hluta af uppsprettunni með sér heim í skólalok s.l. vor og kom svo aftur með hana í nýjum potti í skólann í haust. Nemendur hafa fylgst spenntir með vextinum og tekið þátt eftir áhuga. Í vetur hefur plöntunni verið umpottað nokkrum sinnum og hlúð að henni á ýmsan hátt. Nú ber hún 22 paprikur í mismunandi stærðum. Þetta hefur verið áhugavert ferli og góður lærdómur fyrir nemendur og augnayndi í þokkabót.
Föstudaginn 24.apríl verður skíða- og útivistardagur í Tungudal frá kl. 9:00-13:00 hjá öllum nemendum 5. - 10. bekkjar og er því engin kennsla í húsi hjá þeim nemendum.
Við hvetjum þá foreldra sem geta til að skutla sínum börnum, en við bjóðum upp á eina rútu frá skóla kl. 9:00 og heim aftur kl. 13:00.
Nemendur geta komið með svigskíði, bretti, gönguskíði, þotur, sleða eða hvað sem er til að renna sér á og ættu því allir að geta notið útivistarinnar. Hægt er að fá lánuð svigskíði og klossa endurgjaldslaust í skíðaskálanum.
Nemendur verða að koma vel nestaðir, þar sem ekki er boðið upp á mat á vegum skólans.
Staðan er viðkvæm í Tungudal þar sem snjórinn er á miklu undanhaldi, en starfsmenn gera allt sem í þeirra valdi stendur til að hægt sé að njóta útivistarinnar sem best.
Á morgun er svo sumardagurinn fyrsti og engin kennsla.
Dagana 13. - 17. apríl var seinni Erasmus ferðin hjá Grunnskólanum á Ísafirði. Hópurinn (8 nemendur og 2 starfsmenn) fór til Þýskalands í borgina Ludenscheid, sem er um það bil tveimur tímum frá Frankfurt, þar sem krakkarnir lentu. Á mánudeginum, eftir flugið og leigubílaferð í borgina,, gerðu krakkarnir ekki mikið heldur fengu sér kvöldmat á gistiheimilinu. Hópurinn hitti síðan nemendur og starfsfólk úr samstarfsskólum og fóru svo að sofa.
Á þriðjudeginum vöknuðu krakkarnir snemma og fengu sér morgunmat rétt áður en þeir tóku lest með Þjóðverjunum og Portúgölunum til Dortmund. Þar fór hópurinn saman á tækni/verklegt safn þar sem krakkarnir mældu mjög mikið með því og var algjör stemning þar. Síðan fóru krakkarnir með Þjóðverjunum að skoða borgina, versla og þess háttar. Eftir það ævintýri fóru Íslendingarnir og Portúgalirnir upp á gistiheimilið, fengu sér kvöldmat og síðan voru íslensku krakkarnir með kósýkvöld saman.
Á miðvikudeginum var heimsókn í Adolf-Reichwein Gesamtschule, skóla Þjóðverjanna, og þar voru Þjóðverjarnir með stutta kynningu um heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna. Eftir að hafa skoðað skólann rölti hópurinn saman að miðborginni, þar sem var borðaður hádegismatur og keppt í ratleik um miðborgina. Krakkarnir hittu borgarstjórann í Ludenscheid og tóku fallega mynd af öllum Erasmus hópnum í ráðhúsinu. Eftir heimsóknina í ráðhúsið var frjáls tími í miðborginni áður en haldið var í partý í skólanum. Þar var mikil stemning og stuð, góður matur og frábær félagsskapur.
Á fimmtudeginum var farið í skógarferð þar sem hópurinn fór í alls konar útileiki og þurfti að leita skjóls fyrir rigningu inni í risastórri skemmu, sem áður var notuð af belgíska hernum til að geyma skriðdreka. Eftir hádegið þennan dag var farið á vísindasafnið Phanomenta þar sem krakkarnir fengu að prófa ýmis tæki og tól sem tengjast vísindum og enn og aftur var það ótrúlega gaman. Um kvöldið fengu íslensku krakkarnir að fara út með þýsku krökkunum, þau skemmtu sér mjög vel, fengu sér ís og svo var komið að kveðjustund.
Á föstudeginum var komið að heimferð, þá var vaknað snemma til að fá sér morgunmat og klára að pakka niður. Hópurinn tók svo leigubíl til Frankfurt, þaðan sem var flogið til Íslands og frábærri ferð lauk á BSÍ seinni partinn á föstudeginum. (Skrifað af nemendum sem fóru í þessa ferð).
Eins og fram kom í fyrri frétt komust systkinin Svaha Halldórsdóttir og Nirvaan Halldórsson í úrslit Pangea stærðfræðikeppninnar í síðustu viku. Úrslitakeppnin var svo haldin s.l. laugardag og gerði Nirvaan sér lítið fyrir og náði þar  2.sæti nemenda í 8.bekk.
Við erum virkilega stolt af árangri þeirra systkina og óskum þeim innilega til hamingju með glæsilegan árangur.
Í þremur efstu sætum í hvorum árgangi voru
8. bekkur
1. sæti - Kormákur Jónas Níelsson, Hagaskóla
2. sæti - Nirvaan Halldórsson, Grunnskólanum á Ísafirði
3. sæti - Emil Kári Össurarson, Foldaskóla
9. bekkur
1. sæti - Stefán Dagur Pálmason, Kópavogsskóla
2. sæti - Úlfur Martino Solimene, Laugalækjarskóla
3. sæti - Hákon Jensson, Víkurskóla
Í vetur tóku nemendur 8. og 9. bekkjar þátt í Pangea stærðfræðikeppni sem er fyrir alla nemendur áttundu og níundu bekkja grunnskóla landsins. Aðalmarkmið keppninnar er að vekja áhuga hjá ungu fólki á stærðfræði, hvetja þau sem halda að stærðfræði sé of erfið til dáða með því að sýna þeim að þau geti afrekað miklu ef þau reyna, og hvetja efnilegustu nemendurna til áframhaldandi afreka.
Öll vinna við skipulagningu og framkvæmd keppninnar er unnin af sjálfboðaliðum úr Félagi Horizon og raungreina- og verkfræðinemum. Kennarasamband Íslands hefur verið skipuleggjendum innan handar við gerð prófanna.
Nú er ljóst að tveir nemendur G.Í. komust í úrslit Pangea 2026. Það eru systkinin Svaha Halldórsdóttir og Nirvaan Halldórsson. Þetta er frábær árangur hjá þeim og erum við innilega stolt af þeim systkinum og óskum þeim góðs gengis í úrslitakeppninni, sem haldin verður 18.apríl í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Í dag tóku nemendur í 5. og 7. bekk þátt í að kveðja veturinn og bjóða vorið velkomið. Nemendur gerðu myndir af kakóbollum með nokkrum aðferðum og þurftu að nota lita- og formfræðiaðferðir. Mynduppbygging var rædd, en með þessu verkefni efldu þau fínhreyfingar, notkun olíupastellita, mynsturgerð og klippimyndalist (Collage), sem er aðferð sem notuð var í Abstrakt-list, Kúbisma, Súrreallisma og Pop-list.
Afraksturinn var skemmtilegur eins og sjá má hjá þessu upprennandi listafólki, sem naut handleiðslu Solveigar Eddu Vilhjálmsdóttur, myndlistarkennara.
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á norðanverðum Vestfjörðum fór fram í Félagsheimili Bolungarvíkur í gær, þriðjudaginn 7. apríl. Í henni tóku 10 nemendur úr grunnskólunum á svæðinu þátt og lásu upp úr bókinni Birtingur og símabannið mikla eftir Gunnar Helgason, ljóð eftir Vilborgu Dagbjartasdóttur og ljóð að eigin vali.
Keppnin var mjög spennandi og nemendurnir stóðu sig allir með stakri prýði. Það var því erfitt verkefni sem dómarar stóðu frammi fyrir. Niðurstaðan varð þó sú að í fyrsta sæti varð Aino Magnea Norðdahl Widell, í öðru sæti varð Guðrún Eva Þorvaldsdóttir og í þriðja sæti Eiríkur Bjarkar Jónþórsson, en þau eru öll nemendur Grunnskólans á Ísafirði.
Upplesararnir fengu allir viðurkenningarskjal og rós, en keppendur í verðlaunasætum fengu auk þess gjafir frá Pennanum/Eymundsson og Landsbankanum.
Við óskum öllum lesurum innilega til hamingju með frábæra frammistöðu og kennurum og foreldrum sem hjálpuðu til við þjálfunina.
Þá er 6 glæsilegum árshátíðarsýningum lokið og erum við afar stolt af okkar nemendum og starfsfólki. Eftir daginn í dag hefst páskaleyfi sem stendur til 6.apríl.
Kennsla hefst að loknu páskaleyfi þriðjudaginn 7.apríl samkvæmt stundaskrá. Við vekjum athygli á því að sundkennslan hefst að nýju eftir langa bið.
Við óskum starfsfólki, nemendum og fjölskyldum þeirra sem og öllum velunnurum gleðilegrar páskahátíðar!
Þó veðurspá sé slæm skal tekið fram að skólinn er opinn og vonumst við til að geta sýnt allar árshátíðarsýningar sem eru á dagskrá í dag. Einnig minnum við á reglur Ísafjarðarbæjar:
Þegar gular viðvaranir eru í gildi hjá Veðurstofu Íslands skulu foreldrar ávallt að meta sjálfir hvort óhætt sé að senda barn í skólann. Í slíkum aðstæðum er alltaf einhver hluti starfsmanna mættur í skólann til að taka á móti þeim börnum sem mæta.
Foreldrar skulu meta hvort barn hafi sjálft getu til að komast frá grunnskóla í lok dags, eða hvort foreldri þurfi að sækja barn í grunnskóla/dægradvöl.
Þegar appelsínugular eða rauðar viðvaranir eru í gildi hjá Veðurstofu Íslands þá gilda þau eindregnu tilmæli að foreldrar fylgi yngri börnum til skóla eða að stoppistöð skólabíls og yfirgefi þau ekki fyrr en þau eru í öruggum höndum starfsfólks.
Sé barn heima vegna veðurs eða ófærðar, þegar skóla hefur ekki verið aflýst, skal forráðamaður tilkynna það í síma, tölvupósti eða á Mentor/Karellen. Aðstæður fólks til að koma börnum á milli heimils og skóla eru ólíkar og er tekið tillit til þess. Tilvik sem þessi eru eðlileg forföll og eru skráð sem slík.