VALMYND ×

Fréttir

Maskadagur

Á mánudaginn er maskadagur/bolludagur og hvetjum við alla til að mæta í búningum og mega nemendur koma með bollur í nesti. Við bjóðum upp á maskaböll í sal skólans og er skipulagið eftirfarandi:

kl. 8:20-9:00    1. - 3. bekkur

kl.10:00-10:40  4. og 5. bekkur

kl.13:10-13:50  6. og 7. bekkur

Þeir unglingar sem mæta í búningum eru velkomnir á maskaböllin.

 

Heilsueflandi grunnskóli

Grunnskólinn á Ísafirði hefur nú verið skráður til þátttöku í þróunarstarfi um Heilsueflandi grunnskóla.
Markmiðið er að vinna markvisst að heilsueflingu í okkar starfi með því að skapa skólaumhverfi sem stuðlar að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu og vellíðan nemenda og starfsfólks í samvinnu við heimili og nærsamfélag. Verkefnið sem slíkt hefur hvorki upphaf né endi, heldur er hér um að ræða nálgun sem nýtist í starfinu til framtíðar. Hver skóli vinnur á þeim hraða sem hentar og er reiknað með að taka sér allt að ár í innleiðingarferli.
Við erum spennt að hefjast handa á þessu verkefni sem tekur á heilsu og vellíðan nemenda og starfsfólks og fléttar heilsu og velferð saman við daglegt skólastarf, námskrá og árangursmat.

Samráðsdagur/Foreldradagur

Þriðjudaginn 10. febrúar er samráðsdagur, þar sem forráðamenn og nemendur mæta til umsjónarkennara á fyrirfram völdum tíma. Skráning er nú hafin á Mentor og hvetjum við alla til að skrá sig sem fyrst. Engin kennsla er þennan dag.

Foreldraviðtölin eru nú orðin nemendastýrð hjá okkur samkvæmt hugmyndafræði leiðsagnarnáms, sem aðalnámskrá grunnskóla leggur áherslu á. Nemendastýrðum foreldraviðtölum er ætlað að virkja og valdefla nemendur með það að markmiði að auka trú þeirra á eigin getu. Nemendur hafa undirbúið viðtölin og valið verkefni til að sýna og kynna fyrir forráðamönnum, ásamt þeirri hæfni sem þjálfuð var við vinnuna.

Nemendaþing

Í gær og í dag var haldið Nemendaþing hjá okkur, þar sem allir nemendur skólans tóku þátt í fyrsta skipti. Þing sem þessi hafa verið haldin annað hvert ár, en hingað til hafa einungis nemendur 6. - 10. bekkjar tekið þátt. 

Yfirskrift nemendaþingsins í ár var Líðan og hegðun. Nemendum var skipt í hópa, þar sem 10.bekkingar voru borðstjórar og aðstoðuðu yngsta stigið, en nemendur 7.bekkjar voru borðstjórar miðstigs. Tilgangurinn með þinginu var að efla vitund nemenda um þau áhrif sem þeir hafa á eigin líðan og annarra. Einnig voru nemendur inntir eftir því hvað starfsfólk skólans getur gert til að bæta líðan og ná fram jákvæðum áhrifum á daglegt starf í skólanum. Velt var upp spurningum um hvernig við sjáum, heyrum og finnum virðingu, samhug og góða líðan. Nemendur voru duglegir að svara og komu með góðar ábendingar.

Stjórnendur hafa nú fengið öll svör nemenda í hendur og munu fá aðstoð nemendaráðs til frekari úrvinnslu. Það er mjög mikils virði fyrir okkur sem hér störfum að heyra rödd nemenda og gefa þeim færi á að tjá sig frjálslega um líðan og hegðun, á lýðræðislegum vettvangi. Við hlökkum til samantektarinnar og munum koma henni á framfæri við nemendur og foreldra.

Þorrablót 10.bekkjar

Á morgun er bóndadagur, fyrsti dagur þorra. Samkvæmt venju bjóða foreldrar nemenda í 10. bekk árgangnum á þorrablót þar sem nemendur ásamt foreldrum og fjölskyldu mæta í sínu fínasta pússi og eiga saman ánægjulega kvöldstund, ásamt starfsfólki skólans. Húsið opnar kl. 18:30 og gert er ráð fyrir að borðhald hefjist kl. 19:00.

Þorrablót þetta er upp á gamla mátann og hefur verið haldið allt frá árinu 1981. Gestir hafa með sér mat í trogum og einnig þarf að hafa með sér diska og hnífapör. Drykkir eru seldir í sjoppunni og fer ágóðinn af því í ferðasjóð 10.bekkjar. Glös eru til staðar og boðið er upp á kaffi eftir matinn. Hefð er fyrir því að foreldrar annist skipulagningu og skemmtiatriði, sem iðulega hefur slegið í gegn. Að borðhaldi loknu er svo stiginn dans við harmonikuleik og hafa nemendur æft gömlu dansana af kappi undanfarnar vikur. 

 

Sundhöllin lokuð

Nú hefur verið ákveðið að Sundhöllin við Austurveg verði lokuð í lengri tíma á meðan framkvæmdir standa yfir, en skipta þarf um dælubúnað, laga loftræstingu og bæta við neyðarútgangi. Búist er við að viðgerðir standi yfir alla vega fram í apríl.
Það er því ljóst að sundkennsla fellur niður á meðan og stefnum við á útivist í stað sunds en munum reyna að finna aðstöðu inni til vara ef veður hamlar útivistinni.

 

 

Orð mánaðarins

1 af 3

Með janúar fylgir nýtt orðtak, orðatvenna og málsháttur sem við hvetjum alla til að rýna í og læra.

Gleðilegt ár

Við óskum öllum farsæls árs og vonum að þið hafið notið jólaleyfisins sem best.

Kennsla hefst á morgun, þriðjudaginn 6.janúar kl. 10:00 og mæta þá allir í sínar umsjónarstofur, líka þeir sem hafa íþróttir á sinni stundatöflu. Strætóar verða tveimur tímum seinni á ferðinni en venjulega.

Við viljum vekja athygli á því að sundlaugin er því miður ekki starfhæf í það minnsta á morgun og þarf því enginn að hafa sundföt meðferðis. Við fáum frekari fregnir af framhaldinu á morgun.

 

Litlu jól og jólaleyfi

Á morgun, föstudaginn 19.desember eru litlu jólin haldin frá kl. 9:30-12:00. Að því loknu hefst jólaleyfi nemenda.

Kennsla hefst á nýju ári þriðjudaginn 6.janúar kl. 10:00. 

Starfsfólk skólans óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári.

Nýyrðakeppni

1 af 2

Íslenskuteymi kennara skólans ákvað í haust að halda nýyrðakeppni í tilefni af Degi íslenskrar tungu 16.nóvember síðastliðinn. Nemendur voru fræddir sérstaklega um Jónas Hallgrímsson og framlag hans til nýyrða í íslensku þess tíma. Sem dæmi um nýyrði hans má nefna orðin aðdráttarafl, sporbaugur og fjaðurmagnaður.
Í framhaldi af því voru nemendur fengnir til að spreyta sig á nýyrðasmíði. Hugmyndirnar voru teknar saman ásamt útskýringum og að lokum kosið um besta orðið.

Besta nýyrðið á miðstigi var orðið þrætustubbur. Það merkir manneskju sem þrætir of mikið. Höfundar þess orðs eru þær Kristín Dóra Aradóttir, Maya Esí Badu og Vilborg Rakel Guðmundsdóttir.

Besta nýyrðið á unglingastigi átti Helga Karen Haraldsdóttir í 10.GJ, en það var orðið orðdregin, sem merkir að þú sért orðlaus eða veist ekki hvað þú átt að segja.

Halla Magnadóttir, skólastjóri, afhenti verðlaunahöfum viðurkenningar í morgun fyrir þessi nýju orð. Snerpa gaf vinningshöfum bakpoka og Hamraborg vinatilboð og þökkum við þeim kærlega fyrir um leið og við óskum höfundum svo og öllum þátttakendum innilega til hamingju.